Ég er 52 ára og búsett í Gautaborg. Fædd í Djúpuvík á Ströndum, flutti þaðan til Reykjavíkur. Bjó 3 ár í Bolungarvík áður en við lögðum land undir fót og fórum til Svíþjóðar fyrir 25 árum. Ég er gift og við eigum 4 börn og 2 barnabörn sem öll búa í Gautaborg.
Við erum bæði í stjórn Íslendingafélagsins í Gautaborg og virk í íslensku kirkjunni hér í borg. Ég er líka skátaforingi fyrir 8 og 9 ára börn.
