Hem Skapad : 06/10/24 Senast uppdaterad : 07/08/10 12:13 / 35 inlägg

Gunni Christiansen  Publicerat måndag 12 mars 2007 15:57

Í dag hefði vinur okkar hann Gunnar orðið 59 ára. Því miður hvarf hann frá okkur fyrir tæpum þremur árum allt of ungur. Hugur okkar er með Fríðu og stelpunum þegar við kveikjum á minniskertinu í kvöld.
Permalink

Perlubrúðkaup  Publicerat måndag 12 mars 2007 15:48

Á morgun erum við búin að vera gift í 30 ár og í tilefni dagsins stingum við af til Danmerkur. Við erum búin að bóka hótel í Hirtsals og ætlum að borða 5 rétta veislumáltíð annað kvöld. Tökum bátinn snemma í fyrramálið og komum heim seint á miðvikudagskvöld.

Við erum búin að vera úti eða hér að skemmta okkur hverja einustu helgi síðan á þorrablótinu og þetta er í annað skiftið sem við förum út í miðri viku á sama tíma og svo erum við að fara í matarboð um helgina. Við erum verri í þessu en unga kynslóðin hér á heimilinu.

Hugsið til okkar annað kvöld þegar við sitjum og skálum.

 

Permalink

Þú sem vilt að ég sé til.  Publicerat onsdag 07 mars 2007 16:19

Þar sem formaður sóknarnefndar vill ekki að við þreytumst á að "bara" sitja á fundum ákvað hann að kaupa bók fyrir okkur sem gefin var út að Gautaborgar stifti í fyrra, bókin heitir Steg på vägen og síðan fengum við heimalærdóm fyrir fundinn í kvöld. Þar fann ég þessar fallegu línur sem mig langar til að þýða yfir á íslensku (miðað við það sem ég hef lesið á íslenskum bloggum er íslenskan hjá mér að verða úrelt) svo ég vona að þetta verði skiljanlegt. 

 

Ég er fín því að þú hefur skapað mig.

Ég er dýrmæt því að þú elskar mig.

Falleg er ég í þínum augum

gimsteinn í hendi þinni.

 

Þess vegna gerir ekkert til ef einhver segir

að ég sé einskis virði og heimsk.

Inn í hjarta mitt hvíslar þú sannleikann:

að ég sé meira virði en gull.

 

Ég er augasteinn þinn og leynilegur fjársjóður.

Þú ert glaður yfir að ég er til.

Ég vil þakka þér svo lengi sem ég lifi

og gleymi aldrei hver ég er.

 

Vona að einhverjir njóti þess að þesa þetta.

Knús

Permalink

Icelandair, Kaffi Reykjavík og Jaguar  Publicerat torsdag 01 mars 2007 12:02

Í gær var haldið partý til að halda upp á að Icelandair eru að byrja með beint flug til Gautaborgar yfir sumarið (kominn tími til segi ég bara). Að vísu voru IcelandExpress með beint flug í fyrrasumar en gátu náttúrlega haldið verðinu í hærri kantinum þar sem engin samkeppni var.

Þvílíkt partý þarna voru náttúrlega mikið af fína fólkinu í Gautaborg ásamt sendiherra og síðan fulltrúar frá nokkrum fyrirtækjum á Íslandi. Ég hélt satt best að segja að ég væri búin að tapa glórunni þegar ég kom inn og fann lykt af plokkfisk en fékk þó útskýringu á því skömmu seinna. Við barinn var boðið upp á snittur af ekta íslensku rúgbrauði með plokkfisk á namm namm. Þegar við komum innar í salinn stóð þar kokkur frá Kaffi Reykjavík með HVALKJÖT þið munið kanski þennan ólseiga óþverra sem maður fékk í sunnudagsmatinn sem krakki en það sem boðið var upp á í gær var það æðislegasta sem ég hef fengið í langan tíma bæði sá grafaði og reykti voru lugnamjúkir og hreint út sagt sló öllu við sem ég hef bragðað. Þetta var bara gert sem kynning á þessum frábæra stað sem við höfum náttúrlega aldrei komið á eftir 26 ára búsetu erlendis. Eins og í öllum fínum veislum var boðið upp á alveg frábært hlaðborð með bæði sænskum og íslenskum mat. Meðan við vorum að raða í okkur af þessum fína mat kom Björg frá Kaffi Reykjavík til mín og spurði hvort við myndum vilja afganginn af því sem að þau væru með og kanski hafa eitthvað lítið matarboð fyrir nokkra landa í kórnum og sóknarnefnd. Alveg frábær tillaga að mínu mati svo við sögðum JÁ TAKK. Við höfðum ekki hugmynd um hvað væri í þessum poka sem hún rétti að okkur við brottför en þegar heim kom sýndi sig að við fengum bæði hval og plokkfisk svo nú erum við búin að bjóða 14 manns til okkar í mat á laugardaginn. Það eina sem ég þarf að gera er að baka rúgbrauð og þá höfum við ósvikið íslenskt kvöld hjá okkur með smyggluðu kjöti og hvað eina. (já það er óleyfilegt með öllu að flytja inn hvalkjöt til Svíþjóðar).Ég held satt best að segja að þetta matarboð eigi eftir að breyta hugarfari gesta okkar til hvalkjöts allverulega.

Eftir matinn var boðið upp á tónlist af Jaguar, fleiri af toppunum hjá Icelandair voru steinhissa þegar ég sagðist aldrei hafa heyrt í þessum tónlistarmönnum en eins og ég benti réttilega á þá voru þeir sennilega ekki byrjaðir að spila þegar við fluttum frá Íslandi og því miður verður það stunum þannig að maður fylgist ekki nógu vel með. Nú er ég allavega staðráðin í að logga inn að minnsta kosti einu sinni í viku á Tónlist.is og hlusta á það sem liggur á toppnum. Þetta er ekki hægt að vera svona ókunnugur um það sem er að ske í tónlistarlífinu á klakanum þegar maður er með þennan möguleika.

Birna

Permalink

Þvílíkt þorrablót  Publicerat tisdag 27 februari 2007 10:40

Ég hafði rétt fyrir mér, þorrablótið reyndist það besta sem við höfum haldið í. Við erum búin að fá svo ótrúlega mikið hrós úr öllum áttum að við komum til með að lifa á því í fleiri ár.

Þrátt fyrir að það kæmu bara ca 60 manns var heilmikið fjör, maturinn festist ekki í tollinum og var frábær þó að við yrðum að gera rófustöppuna og uppstúfinn á venjulegri eldavél á staðnum. Þið hefðuð átt að sjá Júlla með risastöppu sem við fengum lánað í skátahúsinu og pottinn á gólfinu til að fá rófurnar í mauk (tókst vel). Það var hörð vinna hjá okkur frá hádegi til þrjú um nóttina við að undirbúa og ganga frá en það var vel þess virði.

Þar sem sendiherrann var sérlegur heiðursgestur og tók að sér að halda í minni kvenna var ég búin að vera þrælnervös yfir ræðunni til minni karla en það sýndi sig að það var óþarfi, stöllur mínar hrósuðu henni í bak og fyrir og vildu meina að ég ætti að taka sendiherrann í ræðunámskeið. Ekki illa af sér vikið   af svona amatör sem hefur bara gert þetta einu sinni áður . Steini okkar tróð upp sem Eiríkur Hauksson og rappaði þorrablótsbrag við góðar undirtektir gestanna.

Við fengum ferðavinninga í lotterí frá báðum flugfélögum Íslands og ég hélt að það væri ómögulegt að sama persóna gæti unnið báða vinningana en það gerðist það sem var ennþá betra var að það var sendiherrann sem vann báðar ferðirnar (hann sem ferðast hvort eð er ókeypis) svo hann ákvað að draga sjálfur aftur svo einvherjir aðrir mundu njóta þessara veglegu vinninga.

Við komumst sem sagt ekki í bælið fyrr en seint og síðar meir og svo hafði okkar ástkæri prestur sett messu á sunnudeginum og þar sem við erum bæði innblönduð í kirkjustarfið þurftum við að vera mætt í kirkju klukkan eitt hress og kát. Það tókst alveg bærilega en fjöldi kirkjugesta var harla takmarkaður.

Knús í bili til þeirra sem lesa þetta bull hjá mér.

Birna

Permalink