Hem Skapad : 06/10/24 Senast uppdaterad : 07/08/10 12:13 / 35 inlägg
 

Eikarleit með GPS  Publicerat måndag 09 juli 2007 11:53

Hér um daginn þurfti bóndinn að vinna aðeins í Vimmerby sem er í Smálöndum. Þar sem þessi landshluti er ákaflega fallegur og mikið að sjá eins og þeir sem lesið hafa bækur Astrid Lindgren vita, skellti ég mér með bæði til að halda honum félagsskap og kanski komast í smá göngutúra. Nú hittist svo á að það er búið að rigna töluvert upp á síðkastið og þessi dagur var engin undantekning. Það rigndi þegar við fórum að heiman en þegar við komum til Vimmerby stytti upp smástund þannig að ég fékk klukkutíma göngutúr. Alveg mátulegt þar sem Júlli var akkúrat búinn með mælinguna þegar ég kom aftur að bílnum. Þá átti að halda á næsta stað og voru upplýsingarnar mataðar inn í þetta frábæra apparat sem á að sýna hvert leiðin liggur. Konukyndin í apparatinu upplýstir um að verið sé að reikna út leiðina og segir síðan hvert eigi að fara svolítið undarlegt að það ætti að vera 10 km þangað þar sem húsið átti að vera stutt frá þeim stað sem við vorum en bóndinn er mikið hrifinn af þessari þólinmóðu konu sem "alltaf" vísar á rétta leið. Ég spurði varlega hvort ekki gæti verið að það væru til tvær götur með sama heiti en það taldi hann að væri út í hött (hann þekkir greinilega ekki Smálendinga nógur vel, þeir eru ákaflega sparsamir og það er ódýrara að kaupa fleiri skylti með sama nafni en eitt og eitt). Eftir þessa 10 km erum við komin á leiðarenda en alls ekki þar sem við ættum að vera það sýndi sig nefninlega að það er til annað bæjarfélag sem heitir Södra Vi og það túlkaði konugreyið sem Södra Vimmerby. Ok tilbaka aftur og í þetta skifti komumst við á réttan stað. Nú rigndi eins og hellt væri úr fötu þannig að ég lét það ógert að fara í göngutúr og beið í bílnum og las þar svona æðislegt túristablað yfir Smálönd. Þar rakst ég á að í nágrenninu sé til 1000 ára gömul eik, heljarstór og sver svo mig langaði til að sjá þetta viðundur. Sagt og gert staðsetning var mötuð inn og svo var keyrt af stað. Þar sem við höfðum ekki neitt kort yfir svæðið urðum við að treysta því að apparatið leiddi okkur á réttar slóðir svo það var keyrt eftir lýsingum hennar í grenjandi rigningu á þröngum sveitavegum í skógum Smálanda. Eftir nokkuð marga kílómetra segir þessi frábæra konurödd: Eftir 200 metra beygið til hægri og þá eruð þér kominn á áfangastað. Þegar við komum þangað var enga stóra eik að sjá eins og sjá má á myndinni og staðurinn hét alls ekki Kville, að vísu er örugglega æðislegt að koma þangað í góðu veðri til að leyta að sveppum og bláberjum en ekki í því veðri sem var þá.

Einn hlut lærði ég af þessu, aldrei að treysta landafræðikunnáttu einhvers apparats og best er að hafa landakort í bílnum ef maður vill vita nokkurnveiginn hvar í landinu maður er.

Partager

Lägg till en kommentar!

(valfritt)

(valfritt)

error

Observera att stötande, rasistiska eller liknande kommentarer inte är tillåtna på den här sidan.
Om någon lämnar in ett klagomål på det du skrivit använder vi din internetadress (38.107.191.101) som identifiering.     

Inga kommentarer
Eikarleit með GPS