Í gær kom Götheborg aftur til Gautaborgar. Skipið er eftirlíking af seglskipi sem sökk fyrir utan Gautaborg 12. september 1745 eftir 30 mánaða fjarveru. Skipið hafði verið í Kína og náð i postulín, silki, krydd og te í þriðja sinn þegar það lenti á skeri úti í skerjagarðinum og sökk. Í kringum 1990 fékk einhver þá snjöllu hugmynd að byggja skip eftir upprunalegum teikningum og á sama hátt en með aðeins meiri nútíma þægindum og sigla til Kína. Sagt og gert 1995 var byrjað á þessu frábæra mannvirki og var hún byggð í Gautaborg svo við gátum fylgs með framvindu mála og séð hvernig unnið var að byggingu hennar. Allt var gert með sömu aðferð og gert var þegar orginalið var byggt. Allir naglar voru handsmíðaðir af járnsmiði, seglin voru handsaumuð, trénaglar voru tálgaðir út og allt útflúr var handskorið af enskum listamanni. Eftir nokkur ár var hún náttúrlega sjósett og fékk nafnið Götheborg og síðasta hönd lögð á verkið á meðan hún lá við hafnarbakkann. 2. okóber 2005 hafði hún ferðina til Kína með viðkomu í nokkrum löndum þar sem tekið var vel á móti henni og áhöfninni. Það er náttúrlega heilmikill kostnaður sem fylgir því að byggja bátinn og svo öll hafnargjöld ásamt launum sem gerir að margir hafa lagt sitt af mörkum til að hjálpa til. (ég á að nafni til einn nagla í henni ). Hluti áhafnarinnar var ráðinn og skiftist á að sigla en mikill hluti voru sjálfboðaliðar og þar sem fyrirtækið sem sá um bygginu skipsins átti í erfiðleikum með að fjármagna þennan síðasta áfanga voru margir af sjálfboðaliðunum sem kostu sjálfir sínar ferðir til þeirra hafna þar sem þeir áttu að fara um borð. Svo loksins í gær kom hún aftur til Gautaborgar, talið er að um 200000 manns hafi verið til að bjóða hana og áhöfnina velkomna aftur. Við drógum náttúrlega tengdamömmu niður að höfn en töldum þó að við ættum ekki að fara þar sem troðningurinn var sem verstur heldur létum okkur nægja að vera á öðrum stað til að hún myndi ekki missa af þessum frábæra atburði. Það var sól og 31 stiga hiti úti svo það var heitt þar sem við stóðum (sátum) í klukkutíma til að sjá þegar þetta mannvirki sigldi inn í höfnina.
Josefine var með okkur niðri við höfn og svo kom Fredik eftir að við komum heim svo þau sváfu hér í nótt.
Veðrið er búið að vera mjög gott upp á síðkastið en þegar hitinn er farinn að skríða yfir 30 þá er orðið aðeins of heitt.
